10.04.2006 19:23:02 / fusiben

Vantar Vélarhlíf

Kvöldið..

Dabbi og Árni fóru að hjóla áðan aðeins.. Dabbi kom einhverntimann og ég fór niðureftir og tók nokkrar myndir og svo loksins kom Árni og stýrið var geeeðveikt stíft hjá honum og hjólið ekki hjólanlegt og dabbi var að vera bensinlaus þannig að við fórum og fengum okkur bensín og svo var búið að setja dropann á og þá fór hjólið ekkert í gang ;)

Bara bras. þannig að þetta var ekkert rosalegur hjóladagur hjá þeim hehe..

Annars fór ég með hjólið mitt útá Vélarverkstæði til að gá hvort þeir gætu lagað þetta litla brot en þeir treystu sér ekki í það þannig að ég verð að redda mér öðru coveri utan á vélina !!

Þannig að ef þú ert með vélarhlíf utaná Hondu Cr 250 í kringum árgerð 97 þá ENDILEGA láta mig vita.. Mig vantar bara neðri part á vinstri helming en ég skoða allt svona !!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ömurlegt að geta ekki verið að hjóla núna en jæja..

I'm out


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 22:25:38 / kiddi predator

Brjálaður !!

Okey nú er ég sko brjálaður.. fyrir svona cirka mánuði þá pantaði ég ný fjórhjóladekk frá helvítis hommunum í púkanum og þegar ég loksins fékk dekkin viku eftir að ég pantaði þá var annað dekkið gallað, það tútnaði ekki nógu mikið út þegar pumpað var í það eða það var U í því eins og maður segir á dekkjamáli.. ég hringdi svo í þá og þeir ætluðu að senda mér nýtt dekk og þegar þeir loksins gátu drullað því í sendingu (tveimur vikum síðar) þá fékk ég aftur gallað dekk!!! Ég hringdi svo alveg brjálaður í helvítis hommana og þá voru þeir að segja að dekkið ætti að vera svona sem er helvítis kjaftæði.. og þegar ég loksins gat sannfært þá um að dekkið væri gallað þá sögðust þeir ætla að senda mér tvö ný dekk sem eru öðruvísi en þessi sem ég fékk fyrst og það er spurning hvenær þau koma.. Allavega þá hvet ég alla mótorhjóla menn að versla ekki við púkinn.com..

Já það þýðir nú ekki að grenja yfir þessu.. við erum að verða búnir með rampinn sem við erum að smíða það á bara eftir að setja plötuna á hann.. við ætlum að hafa svona fjárgrindur á honum sem er svona net sem kindurnar ganga á í fjárhúsum.. við fáum svo mjög líklega styrk frá landsbankanum þá þurfum við ekki að borga eins mikið fyrir efnið í honum.. helvíti dýrt allt saman.. við erum held ég 15 sem borgum í honum svo við þurfum nú ekki að borga mikið hver.. við verðum nú að láta myndir af honum hérna svo fólk sjái nú hvað við erum að fara að vaða í..

Já þetta er að verða fínt held ég.. Endilega skrifa í gestabókina 

» 19 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 11:31:46 / fusiben

Annað myndband á leiðinni..

Jæja jæja..

Ég er búinn að vera að dunda aðeins í þessu myndbandi og er búinn að klippa heilar 12 mínútur sem er bara slatti..

Ég á samt eftir að fá myndböndin frá damma sem hann tók upp og það er einhver slatti skal ég segja ykkur. Þegar ég er kominn með það þá fara hlutirnir að gerast !!

Ætli það verði ekki svo stórt að það þurfi að bara downloada þessu.

En ég er farinn bæ.. og það má einhver blogga herna ef hann vill..


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 15:19:14 / fusiben

Gay pride

Já hæ ég var að prufa að setja þennann banner inn sem reyndar á eftir að klára en það er ekkert verra að henda þessu inn..

Svo var ég að skipta um skoðannakönnun og auðvitað vann Hondan þetta hehe 8)

En ég ætla að setja nokkrar myndir herna frá 27 feb..

 

 

Jæja ég minkaði þær soldið en ég veit samt ekki alveg hvort þær eru í réttum hlutföllum hehe.. Og þær eru soldið óskýrar útaf ég þurfti að minka þær svo mikið..


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 02:37:54 / kiddi predator

Sælt veri fólkið

Maður verður nú að prófa að blogga eitthvað... Ég og Fúsi fórum að hjóla í dag í geggjuðu veðri. Fórum uppí krús og djöfluðumst þar í smá tíma.. síðan ákváðum við að krúsa eitthvert og finna einhvern snjó til að spóla í.. við fundum nú ekki beint mikinn snjó en við fundum helvíti skemtilega brekku þar sem gamla skíðalyftan var.. það er svo geðveikt að hjóla í þessum snjó..svo fórum við heim og ég varð bensínlaus á leiðinni.. helvítis bras..

 

Í gær þá voru ég, Fúsi, Siggi kúskur, Siggi vindur og Elfar að hjóla og Siggi vindur lenti í því óláni að hjólið hans bilaði, fór stimpill eða eitthvað.. við fórum uppí skíðalyftu og hvíldum okkur aðeins þar í skálanum og fórum svo eitthvert lengst uppí fjall (man ekki hvað það heitir. heiðahnjúkurinn eða eitthvað) og fundum geðveika brekku upp á tindinn á fjallinu og það var svo geðveikt gaman að þrikkja þarna upp á hjólunum.. fullt af snjó þarna uppfrá.. við ákváðum síðan að fara hinum megin niður af fjallinu og það var helvítis bras, geðveikt bratt og allt í þúfum og veseni.. það reddaðist samt allt og við komum niður hjá gömlu skíðalyftunni og svo brunuðum við heim.. nóg af bensíni farið á þessum degi.

 

Jæja ég þakka fyrir mig og endilega commentið eitthvað og skrifið í gestabókina.. sjáumst..:) :haha:

» 8 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 20:10:10 / Horny

Hjólað var mikið í dag !!

Jájá djöfull var skemmtilegt að hjóla í dag í krúsinni það voru alveg fullt af gaurum ég Elfar, Gulli S, Siggi kúskur, Siggi vindur, Kiddi, Dabbi og ef ég er að gleyma einhverjum þá er það bara því við vorum svo djöfulli margir maður er ekkert með svonna gott minni sjáiði til. En við vorum bara að leika okkur í gryfjunum það var heilviti gaman og við fundum 2 góða palla að stökkva á en þeir grófust svo fljótt og eyðilögðust. Það var tekið slatta af video um af okkur sem maður fær kanski einhvern tíman að sjá.

Það var einginn smá drulla þarna upp frá maður var bara svartur þegar maður kom heim sást varla í hjólið fyrir drullu en það er nu bara gaman að leika sér í svonna drullu af og til

En hey svo er Klaustur 27 maí og mig langar geðveikt að fara og ef þér vantar félaga til að keppa með þá er ég til því ég er ekki með neinn partner en langar samt ógeðslega að taka þátt en allavega ef þið vitið um einhvern sem vill fara á klaustur þá endilega talið við mig

8663601 og mailið er arni_sweet1@hotmail.com

takk fyrir


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 18:10:25 / Gulli

sælir/ar

þá er maður að fara blogga á þetta við höfum ekki verið nógu duglegir að blogga fyrir utan fúsa hann hefur verið að alveg óður en ég hef ekki mikið að segja nema það að síðustu daga hefur maður ekkert hjólað einhver djöfullinn að en búinn að laga þá var það bara kerti sem var alveg handónýt. Svo er kallinn ég (Gulli) búinn að kaupa sér búnað og flestir vilja meina að ég hafi verið eitthvað lengi að því það getur samt vel verið en það skiptir ekki máli ég pantaði loftsíu með því mín var heima tilbúinn eða eitthvað :D:D hún er samt flott, síðan eru opnu dagarnir að byrja í skolanum og þá verður sko hjólað við erum eitthvað 8 eða eitthvað sem erum að hjóla í skolanum það er algjör snilld en ég er að fara hvet alla til að blogga

og kaupa sér hjól það er snilld bless Gulli ÚT

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 00:05:09 / fusiben

jáhá..!!..!!

Já þetta tókst mér að gera í dag.. Takk fyrir bæ !!

en það er ekkert mál að laga þetta..

 

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 00:37:57 / fusiben

Hemmi Gunn

Já það er sannarlega allt að gerast núna.. Pallar hér, pallar þar og ég veit ekki hvað og hvað..

Já við vorum niðra sandi í dag og erum búnir að vera síðan fimmtudag að gera palla og eitthvað. Dammi kom aftur á gröfunni og gerði fínann pall eiginlega svona Table Top pall en ekki alveg.. Það þarf aðeins að laga hann og lengja þá er þetta orðið helvíti gott. Það tók svolítinn tíma að gera hann þannig að þegar strákarnir fóru að testa hann þá var svona aðeins farið að dimma. Maður er að vera bara pro ljósmyndari.. Ég náði helviti flottri myndum af Árna og Sigga Vind..

En ég tók fullt af myndum og video og ég get svo svarið það að það skeði eitt af því alfyndnasta sem ég hef nokkuð tímann séð og ég náði því á video !!!!!! :D:D

Það var þannig að Ingvi Aron kom á nöðrunni niðrá sand til okkar og Jónas sagði við hann eitthvað: Leyfðu mér að taka í gamla tækið eða eitthvað og hann fékk það og Ingvi spurði hvort hann vildi hjálm og Jónas alveg Neihh ég þarf ekkert svoleiðis helviti á þetta helvíti !!!!!.. Og svo fór hann af stað og átti erfitt með því að halda balance og svo sikk sakkaði hann þarna og flaug svo á hliðina.. VÁÁ hvað þetta var fyndið. Við dóum svo allir úr hláti hahah og ég horfi á þetta aftur og aftur í tölvunni og hlæ alltaf jafn mikið.. Þetta verður pottþétt í næsta Video-i !!

En ég er á fullu að setja inn myndir.. Þetta tekur svo anskoti langann tíma og svo anskoti mikið af myndum !! En ég er farinn.. Veriði blessuð..


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 23:25:45 / fusiben

Fallerý Fallera

Jæja nú er alltaf að gerast í sveitasælunni..

Við fórum að hjóla í dag niðrá sandi (Elfar, Árni Jón, Ég, Gulli, Siggi Vindur og Jónas) og dammi kom á stóru gröfunni þarna og gerði pall fyrir okkur sem var bara nokkuð góður en það var fljótt að koma alltaf för í hann og það þurfti alltaf að vera að slétta hann og lendingin var ekki neitt rosalega góð hehe.. Ætlum örugglega að gera Table Top á morgun kannski..

En Elfar tók smá listdans hehe og fór yfir sig í röri í fimmta gír og braut afturbrettið, ekki nógu gott og er svona að nett drepast í rassgatinu hehe, það skekktist líka stýrið og læti.. Hondan klikkar ekki 8)

Ég er að vinna í því að setja myndir frá deginum í dag og ég er búinn að setja myndir frá því þegar Ég, Helgi og Elfar fórum að hjóla á laugardeginum eða eitthvað, á bara eftir að setja link.. Nóóg að gera !!

Svo var gulli loksins að fá hjólið sem er búið að vera á verkstæði í mörg ár liggur við, og hann var að tilkeyra stimpilin.. Hann kom með gamla flotta hjálminn hans elfar (þennann fjólubláa you know;) ) Eðal gripur.. Svo var komið fullt af fólki að horfa sem ég nenni bara einfaldlega ekki að telja upp..

En þetta er komið gott í bili !!

Veriði blessuð og fáið ykkur hjól og mér finnst að stelpur ættu að fara að fjölmenna þennann stelpnahóp hér á landi.. Það er fullt af stelpum en vantar mikið meira að þeim ínni sportið..


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 21:31:41 / fusiben

..

Jááhh maður einfaldlega spyr sig :)

!Ķ̊㿰ϣ剅刭䝉呈›攣散搹㬸倠䑁䥄䝎刭䝉呈›挰㭭䈠剏䕄ⵒ佔㩐⌠捥㥥㡤※䅐䑄义ⵇ䕌呆›挰㭭倠䑁䥄䝎䈭呏佔㩍〠浣※佂䑒剅䰭䙅㩔⌠捥㥥㡤※䅐䑄义ⵇ佔㩐〠浣※佂䑒剅䈭呏佔㩍⌠捥㥥㡤※䅂䭃則問䑎䌭䱏剏›牴湡灳牡湥t

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 19:07:33 / fusiben

Myndbandið er komið inn !!

Jæja núna er myndbandið komið inn en það getur verið að það taki smá tíma fyrir ykkur að hlaða því inn en þið getið auðvitað bara downloadað því held ég eða ég get kannski sent bara á msn ef ég nenni.. Endilega kíkjið á þetta

P.s Hafiði hljóðið á !mikklu skemmtilegra

En ég held að málið sé að fá sér svona græju;)

Kíkjið á myndbandið.. heyrumst


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 19:42:22 / fusiben

Daginn!!

Jæja það eru komin þrjú lítil video og ég er búinn að klippa stóra Myndbandið sjálft og það er tilbúið en það á eftir að setja það inn á síðuna.. Einar hefur verið góður að hjálpa okkur með það en ég bara einfaldlega kann það ekki ;) Halelúja..

Ég vil líka þakka Ingva aroni fyrir að taka myndir og video og Einar líka og ef ég er að gleyma að þakka einhverjum þá bara hendiru inn commenti og segir frá því og ég vona að þið nennið að halda áfram að taka fleiri video og myndir.. en við erum búnir að gera það mest sjálfir..
En það er alveg ótrúlegt hvað þessar klippur voru margar og þetta er alveg sjö mínútna myndband þegar það er búið að klippa það og gera ready. Endilega downloadið þessu, það er gaman að eiga svona myndband..

En ég er farinn.. veriði blessuð og ég læt vita leið og myndbandið kemur inn



» 1 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 20:37:50 / Horny

Já góðan daginn vinir og vinkonur

Jamm ég og dabbi fórum að hjóla í dag og það koma einhverjar myndir inn seinna en dabbi var djöfulli góður sko....:) við vorum búnir að standa í þvílíku vesenni redda bensíni fá einar til að taka myndir og redda honum fari upp eftir svo komum við okkur loksins upp eftir en nei var dabbi búinn að vera á hjólinnu í svonna 3 mínótur flaug á hausinn braut bensíngjöfinna !og meiddi sig feitast í hnénu og eikkað vesenn svo ekki varð mikið úr því og þá ætluðum við nátta bara að redda nýrri bensíngjöf og svo heppilegt var að dabbi átti ál inngjöf það var náð í hana en svo þegar við ætluðum að skipta um hana nei. Það voru allar skrúfurnar handónítar og vesenn komu svo Helgi og Óskar bróðir hanns og þeir hjálpuðu okkur og við tókum bara stýrið af og fórum með það niðrá eyri og náðu þeir að losa skrúfurnar og svo komum við aftur uppeftir en nei þá var ál inngjöfinn eikkað vangefinn svo við náðum ekkert að festa hana svo dabbi keyrði bara með því að tosa í bensín barkan :) niðrá steinull og skildi hjólið eftir þar :) en annars var þetta fínn dagur !!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 10:31:42 / fusiben

Myndir

Það eru komnar inn myndir og er að vinna í því að setja fleiri..

Njótið !!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2